Húsaleiguábyrgð frá Leiguskjóli
Leiguskjól veitir ábyrgð fyrir húsaleigutryggingu bæði með eða án handveðs. Þegar beðið er um handveð frá umsækjanda, þá þýðir það að viðkomandi þarf að reiða fram þá upphæð sem ábyrgðin hljóðar upp á í formi bankainnistæðu.
Hægt er að sækja um ábyrgð hjá Leiguskjóli líka þeirri sem bankar bjóða upp á. Ferlið er svipað en ekkert gjald er tekið fyrir útgáfu ábyrgðarinnar hjá Leiguskjóli ef fullt handveð fylgir.
Dæmi
Leigusali fer fram á bankaábyrgð og tekur ekki ábyrgð án handveðs gilda, þ.a. leigusali vill að peningar liggi á læstum reikningi í vörslu þriðja aðila. Leigutaki getur þá snúið sér til Leiguskjóls og lagt upphæðina inn á vörslureikning ábyrgðarþjónustunnar. Leiguskjól tekur þá innlögn að handveði, líkt og banki gerir þegar um bankaábyrgð er að ræða, ef greiða þarf út ábyrgð vegna skemmda, tjóns eða vanefnda leigutaka.