Bankaábyrgðir
Bankaábyrgð er ábyrgð sem banki veitir aðila, annaðhvort einstaklingi eða lögaðila, til að greiða fyrir eða auðvelda viðskipti viðkomandi við annan aðila. Sá sem fær ábyrgð frá banka þarf í mörgum tilvikum að leggja til upphæð ábyrgðarinnar að veði í peningum, svonefndu handveði. Þá þarf viðkomandi að eiga alla upphæðina tiltæka.
Kostir bankaábyrgða sem Íslandsbanki nefnir á vefsíðu sinni
- Tryggir hagsmuni kaupanda og seljanda
- Þjónar bæði fjármögnunar- og tryggingahlutverki
- Megin flokkar eru skjalaábyrgðir og greiðsluábyrgðir
Skilgreining greiðsluábyrgðar hjá Íslandsbanka:
Greiðsluábyrgðir (Guarantees)
Óafturkallanleg skuldbinding banka á greiðslu til ábyrgðarþega. Slíka ábyrgð þarf ekki að opna með milligöngu annars banka. Greiðsluábyrgðir eru oftast opnaðar beint til ábyrgðarþega.
Þær gegna fyrst og fremst tryggingarhlutverki vegna ýmissa viðskipta, svo sem erlendra lána, leigugreiðslna, útboða, framkvæmda og vörukaupa. Meðal greiðsluábyrgða má nefna fiskmarkaðsábyrgðir, verkábyrgðir, húsaleiguábyrgðir og fleira.
Ókostir bankaábyrgða
- Leggja þarf fram fullt handveð í mörgum tilvikum
- Binda þarf fé inni á reikningi
- Engin úttekt né ljósmyndun á leiguhúsnæði
- Kostnaður frá 16 – 25 þúsund við útgáfu
Ábyrgð frá Leiguskjóli
Leiguskjól gefur út húsaleiguábyrgðir en eðli þeirra er sams konar og þegar um bankaábyrgð er að ræða. Ábyrgðaraðili er þá Leiguskjól en mun einfaldara er að sækja ábyrgð án veða hjá Leiguskjóli en bönkum. Þegar um veðlausa ábyrgð er að ræða, þá greiðir ábyrgðarþegi iðgjald. Hægt er að lesa nánar um ábyrgðaþjónstu hjá Leiguskjóli á vefsíðunni okkar.