Er Leiguskjól tryggingafélag?

Nei, Leiguskjól er ábyrgðaþjónusta

Nei, Leiguskjól er ekki tryggingafélag. Leiguskjól veitir sjálfskuldarábyrgð á húsaleigusamningum sem ábyrgðataki greiðir iðgjald fyrir sem reiknað er á ársgrundvelli en hægt að skipta í mánaðarlegar greiðslur.

Sjálfskuldarábyrgð á húsaleigusamningum er eitt form trygginga sem leigutaki getur lagt fram við undirritun leigusamnings til tryggingar á réttum efndum samningsins. Ábyrgðin er svokölluð "in-solidum" sem merkir að komi til vanskila eða tjóns af völdum leigutaka, og leigusali sækir á Leiguskjól, þá eignast Leiguskjól endurkröfurétt á leigutaka fyrir því sem greitt var út.


Svaraði þessi grein því sem þú varst að velta fyrir þér?
  • Dagsetning
    14.11.2018