
Hátíðunum fylgir oft og tíðum mikil útgjöld og getur verið sérlega erfitt að ná endum saman um þetta leyti árs. Margir bregða á það ráð að fresta greiðslum og skuldsetja sig með því að greiða fyrir jólagjafainnkaup og annan kostnað með kreditkortum eða skammtímafjármögnun á borð við Netgíró eða Pei.
Losaðu um eigið fé
Allar skuldir þarf að lokum að greiða hverju nafni sem þær nefnast. Skammtímafjármögnunarfyrirtæki auglýsa frest fram í febrúar og koma kreditkortaskuldir vegna jólanna ýmist til greiðslu í byrjun janúar og febrúar.
Fólk á leigumarkaði neyðist oft til að grípa til þessara ráðstafana þrátt fyrir að eiga nægt fé til að staðgreiða jólainnkaupin. Féð er hins vegar oft bundið í svokölluðum bankaábyrgðum og er læst inni á bankabók og ekki hægt að ráðstafa því.
Með því að skipta bankaábyrgðinni út fyrir ábyrgð frá Leiguskjóli er hægt að losa um þetta fé, sem í mörgum tilvikum hleypur á hundruðum þúsunda, og hvort sem er staðgreiða jólagjafainnkaup eða eiga fyrir reikningunum frá lánafyrirtækjunum í febrúar.
Sæktu um ábyrgð hér á vefnum og sjáðu hversu háa ábyrgð þú átt rétt á hjá Leiguskjóli og hversu mikinn afslátt þú getur fengið af iðgjöldum.